Sannkallað HM-æði hefur gripið um sig í Noregi eftir sigur Norðmanna á liði Fílabeinsstrandarinnar í 32 liða úrslitum í gær. Nærri fjörutíu ára gamall slagari með Eurovision-stjörnunni Jahn Teigen heitnum er nú sunginn hástöfum á götum úti.Ég er bjartsýnismaður syngja Norðmenn. Ekki veitir af, næsti leikur er á móti Brasilíu. En í gær komu um 35 þúsund manns saman á Ullevaal-leikvanginum í Ósló, sjón er sögu ríkari.Um 35 þúsund manns fögnuðu samana á Ullevaal-leikvanginum í Ósló í gær. Norðmenn eru helteknir af HM-æði eftir sigur í 32 liða úrslitum.Leikurinn endaði 2 - 1 fyrir Noregi, gulldrengurinn Erling Haaland skoraði auðvitað sigurmarkið og Norðmenn fóru ekki heim að sofa eftir leikinn heldur var fjör fram eftir nóttu.„Ég rétti úr mér og varð 10-15 árum yngri við seinna markið,“ sagði