Gríðarleg fjölgun í greiningum á þreytuheilkenni eftir veirusýkingu

Tæplega 800 manns hafa greinst með þreytuheilkenni eftir veirusýkingu hér á landi frá árinu 2020. Á sama tímabili hafa ríflega þrjú þúsund greinst með eftirstöðvar Covid.Mikil aukning hefur orðið í greiningum á þreytuheilkenni eftir veirusýkingu, en alls hafa 763 einstaklingar greinst á árunum 2020-2025 samanborið við aðeins 241 einstakling á fimmtán ára tímabili áður. Greiningar hafa því rúmlega þrefaldast á síðustu sex árum.Þetta kemur fram í svari Ölmu Möller heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórðar Snæbjarnarsonar, þingmanns Samfylkingarinnar.Íslensk erfðagreining hefur á undanförnum árum unnið að rannsóknum á langvinnum afleiðingum Covid. Akureyrarklíníkin, sem stofnuð var árið 2024, rannsakar jafnframt ME-sjúkdóminn og langvinnar afleiðingar COVID-19.ME-sjúkdómurinn er tau
Gríðarleg fjölgun í greiningum á þreytuheilkenni eftir veirusýkingu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd