Biobú deilir ávinningi góðs sumars með neytendum

Biobú hefur ákveðið að lækka verð á öllum lífrænum mjólkurvörum um 7% á tímabilinu 1. júlí til 31. ágúst næstkomandi. Meðal vöruflokka eru lífræn mjólk og fjölbreytt úrval jógúrtvara. „Við tókum þessa ákvörðun vegna einstaklega góðra skilyrða til mjólkurframleiðslu í sumar. Lífrænu mjólkurkýrnar hafa skilað meiri nyt en nokkru sinni fyrr og því er framboð af hágæða lífrænni mjólk meira en áður. Við viljum að sá ávinningur skili sér alla leið til neytenda,“ segir Helgi Rafn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Biobú í tilkynningu.
Biobú deilir ávinningi góðs sumars með neytendum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd