Heimastjórn Djúpavogs segir að viðhald og þjónusta á Axarvegi sé í algjörum ólestri. Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, telur fjármagn til viðhalds vega á Austurlandi of naumt skammtað.„Það er ekki við starfsmenn Vegagerðarinnar hérna á svæðinu að sakast en þeir hafa bara ekki það fjármagn sem þarf til að sinna vel viðhaldi vega hér á svæðinu, það er alveg ljóst.“Austfirðingar hafa lýst vonbrigðum með fáar áætlaðar nýframkvæmdir í landshlutanum í nýrri samgönguáætlun.„Þá skyldi maður ætla, ef á ekki að fara af stað með nýframkvæmdir, að það væri þá sett meira fjármagn í einmitt viðhald til að halda við þessum gömlu vegum þangað til eitthvað nýtt tekur við. Þarna getum við horft til bæði Axarvegar, við getum horft til sveitavega, við getum horft til Fjarðarheiðarinnar til dæm