Í lok mars síðastliðnum var undirritað samkomulag um að eigendur fyrirtækjanna Kemi ehf. og Fálkans – Ísmar hyggðust sameina rekstur félaganna að fenginni heimild frá Samkeppniseftirliti og niðurstöðu áreiðanleikakannanna. Nú hefur öllum fyrirvörum verið aflétt og því hefur samkomulagið öðlast gildi. Frá og með 1.júlí verður rekstur Fálkans – Ísmar áfram í óbreyttri mynd en sem dótturfélag Kemi ehf. Kemur þetta fram í tilkynningu.