Kanada tekur þátt í Eurovision

Kanada verður meðal keppenda í Eurovison, Söngkeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef EBU, Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva.Kanada verður þar með annað landið utan Evrópu til að fá þátttökurétt í keppninni, en Ástralía hefur tekið þátt frá árinu 2015.Kanada yrði fjórða ríkið sem er alfarið utan Evrópu til að keppa í Eurovision. Auk Ísraels og Ástralíu tók Marokkó þátt í keppninni árið 1980.Kanadíska ríkisútvarpið, CBC/Radio Canada, fékk fulla aðild að EBU í vikunni. Landið hefur um árabil verið áheyrnarmeðlimur í EBU.CBC mun tilkynna síðar á þessu ári hvernig framlag Kanada verður valið.Haft er eftir Marie-Philippe Bouchard, forstjóra CBC, í tilkynningu EBU að Kanadamenn séu spenntir fyrir því að kynna hæfileikafólk sitt á sviði tónlistar. Hini
Kanada tekur þátt í Eurovision

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd