Sóttvarnalæknir á engin gögn um fjölda berklasmitaðra á Íslandi, aðeins fjölda berklaveikra sem sýna einkenni.Um 10-20 greinast árlega með berklaveiki á Íslandi og fjöldinn hefur haldist stöðugur síðustu ár. Engar tölur eru þó til um tilfelli svokallaðra sofandi berkla þar sem þau eru ekki tilkynningaskyld.Berklabakterían getur legið í dvala ævilangt án þess að sjúkdómur komi fram, þar sem heilbrigt ónæmiskerfi getur haldið smitinu í skefjum. Við veiklað ónæmiskerfi geta bakteríurnar fjölgað sér og sjúkdómurinn tekið sig upp. Berklabakterían er mjög útbreidd og er talið að um þriðjungur jarðarbúa sé með berklasmit.Aðeins staðfest berklaveikindi eru tilkynningaskyld og því ekki til gögn um smit sem greinast í skimunum. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir telur að það væri mjög gott ef slík smit