Minna varð úr boðuðum mótmælum gegn óskráðum innflytjendum í Suður-Afríku í gær en óttast var. Mótmælahreyfingar höfðu gefið fólki frest til dagsins í gær til að yfirgefa landið eða taka afleiðingunum ella.Mótmæli fóru sannarlega fram víða um landið þar sem þúsundir gengu fylktu liði um götur borga og bæja. Lögregla hafði gert ráðstafanir og segir samkomurnar hafa að mestu verið friðsamlegar en þó hafi 900 manns verið handteknir og sumir rósturseggir fóru ránshendi um verslanir.AFP hefur eftir Tendai Mbanje, sérfræðingi í stjórnsýslu við háskólann í Pretoríu, að skipuleggjendur mótmælendanna hafi ofmetið stuðninginn við málstað sinn.Ef ekki hefði verið fyrir stuðning nokkurra minni stjórnmálaflokka hefði mætingin verið enn dræmari.Síðustu vikur hafði þrýstingurinn á innflytjendur magnast s