"Víðtæk og kerfisbundin dráp og misþyrmingar" á palestínskum börnum

Víðtæk og kerfisbundin dráp og misþyrmingar á börnum hafa verið framin á milli 23. október 2023 og 23. október 2025,“ sagði Srinivasan Muralidhar, formaður alþjóðlegrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda á hernumdu svæðunum í Palestínu, það er að segja Gaza, Vesturbakkanum og Austur-Jerúsalem, þegar hann kynnti nýjustu skýrslu nefndarinnar í liðinni viku. Fjallað var um niðurstöður rannsóknarnefndarinnar í Speglinum á þriðjudag. Hlusta má á þá umfjöllun í spilaranum hér að neðan eða lesa áfram þar fyrir neðan.Ísraelar hafa stundað vísvitandi og markviss dráp á palestínskum börnum og gera það enn. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýjustu skýrslu sjálfstæðrar rannsóknarnefndar SÞ á stöðu mannréttinda- og mannúðarmála á hernumdu svæðunum í Palestínu.Markmiðið með
"Víðtæk og kerfisbundin dráp og misþyrmingar" á palestínskum börnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd