Opinbera hlutafélagið Göng og brú ohf. hefur verið stofnað um fjármögnun og uppbyggingu samgöngumannvirkja á grundvelli laga um innviðafélag sem samþykkt voru á Alþingi.Markmið félagsins er að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum, að því er segir í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.Þar segir að félagið muni starfa á sjálfbærum fjárhagslegum grunni og mun fjármögnun að mestu byggja á notendagjöldum og lánsfjármögnun á almennum markaði. Þó er einnig heimilt að sækja fjármagn frá lífeyrissjóðum og öðrum sérhæfðum fjárfestum.Félagið er stofnað á grunni Vaðlaheiðarganga hf. og mun fara með eignarhald og rekstur Vaðlaheiðarganga frá og með deginum í dag.Alþingi mun hafa stefnumótandi aðkomu að rekstri Ganga og brúar í gegnum samgönguáætlun, þar sem verkefni sem