Óháð raknnsóknarnefnd með störfum lögreglu í Bretlandi (IOPC) skoðar nú hvort tveir lögreglumenn hafi brotið af sér í starfi þegar þeir handtóku ungan mann sem hafði verið stunginn með hnífi skömmu áður.Vickrum Digwa stakk hinn 18 ára Henry Nowak með hnífi á götu úti í borginni Southampton í desember. Þegar lögregla kom á vettvang sagði Digwa að Nowak hafi veist að sér með kynþáttahatri og svo hrasað. Í búkmyndavélum lögreglu sést hvar lögreglumenn handjárna Nowak þar sem hann liggur á jörðinni og segist ekki geta andað. Hann hafi verið stunginn.Lögreglumaður heyrðist þá segja: „Það held ég ekki, félagi.“Nowak missti fljótlega meðvitund og þá hófu lögreglumenn endurlífgunaraðgerðir sem báru ekki árangur. Í frétt BBC segir að átta mínútur hafi liðið frá því að lögreglumennirnir mættu á svæð