Minnst fimm eru látnir í eldsvoða í íbúðablokk í Antwerpen í Belgíu. Belgíska lögreglan hefur staðfest þetta. 200 búa í íbúðablokkinni, sem er á tíu hæðum.Í Brussels Times segir að leit að fólki standi enn yfir og að dökkan reyk leggi frá byggingunni.Útkall barst vegna eldsins skömmu fyrir klukkan 10 að staðartíma og ekki liggur fyrir hvernig eldurinn kviknaði.Lögreglan í Antwerpen í Belgíu segir minnst fimm hafa látist í eldsvoða í íbúðablokk.