Vatn flæddi inn á flugstöðina í Kastrup í morgun með þeim afleiðingum að loka þurfti nokkrum verslunum og veitingastöðum.Í frétt danska ríkisútvarpsins, DR, segir að vatnið hafi fossað ofan úr loftinu, en ástæðan var, að sögn upplýsingafulltrúa flugvallarins, að iðnaðarmenn að störfum í flugstoðinni óku á rör tengt eldvarnarkerfinu þannig að það fór í sundur.Atvikið hafði ekki teljandi áhrif á starfsemi flugvallarins og allar flugferðir voru á áætlun. Verið er að klára að þurrka upp vatnið.Frá Kastrup-flugvelliEPA / Mads Claus Rasmussen