Lögregla rannsakar andlát konu sem féll fram af svölum á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi á sunnudag. Hjúkrunarforstjóri segir starfsfólk harmi slegið.Starfsfólk hringdi á lögreglu þegar slysið varð. Áfallateymi Rauða krossins var kallað til og hitti starfsfólkið sem var á vakt. Eybjörg Helga Hauksdóttir er forstjóri hjúkrunarheimilisins Eirar. Hún segir engin vitni hafa verið að slysinu.„Í rauninni sá enginn þetta gerast, þannig að það er ekkert hundrað prósent vitað annað en að íbúinn fer þarna fram af svölum sem eru samt með nokkuð háu handriði. Lögregla er að ganga út frá því í sinni rannsókn að þetta sé slys.Miðlæg rannsóknardeild lögreglu rannsakar andlátið sem slys. Eybjörg segir atvikið einnig fara í greiningarferli innanhúss í samstarfi við embætti landlæknis. Þá verði rýnt í ö