Þegar stórar framkvæmdir hefjast skiptir miklu máli að réttar vélar séu til staðar á réttum tíma. Það er einmitt kjarninn í starfsemi Arma Jarðvéla sem sérhæfa sig í útleigu á jarðvinnuvélum fyrir verkefni af öllum stærðum. Að sögn Þóris Kristmundssonar, verkstjóra hjá Örmum Jarðvélum, er markmiðið einfalt: að viðskiptavinir fái áreiðanlega þjónustu og þann búnað sem þeir þurfa, hvar sem er á landinu.