„Ég er sakfelldur fyrir ólögleg minkadráp. Það er 50 þúsund króna sekt eða fangelsi í fjóra daga,“ segir Árni Logi Sigurbjörnsson, meindýraeyðir í Víðihlíð í Öxarfirði, en hann var fyrir skömmu sakfelldur í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir brot gegn lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.