Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, gagnrýnir Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra og sakar hana um að standa ekki með starfsfólki Hvals hf. í skugga hótana dýraverndarsamtaka Pauls Watson skipstjóra.Tilefni Facebook-færslu Vilhjálms er viðtal við ráðherra þar sem hún gagnrýnir háttsemi starfsmanna Hvals. Vísir ræddi við Hönnu Katrínu um hvalveiðar og sérstaklega um það þegar starfsmaður Hvals sveiflaði getnaðarlimi dauðs hvals fyrir myndatökumann fréttastofu Sýnar við löndun tíundu langreyðar veiðitímabilsins í gær. Við sama tilefni sungu starfsmenn Hvals þjóðsöng Íslands og einn þeirra hrópaði „Áfram Ísland“.Í færslunni segist Vilhjálmur ekki ætla að bera blak af hegðun starfsmannanna en hann segir vekja furðu hvernig ráðherra gríp