Ísraelsher hefur ekki í hyggju að yfirgefa svæði sem hann hefur lagt undir sig í nágrannaríkjum síðustu misseri, heldur er stefnt að því að koma þar upp „öryggissvæðum“ um óákveðinn tíma.Þetta sagði Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, í morgun.„Ísraelsher verður um kyrrt á öryggissvæðunum í Líbanon, Sýrlandi og Gaza um óákveðinn tíma til að verja íbúa okkar og samfélag gegn jihadistum,“ sagði Katz við athöfn til heiðurs hermönnum sem féllu í stríðinu við Líbanon árið 2006.Þessi afstaða er í samræmi við orð Benjamins Netanjahú forsætisráðherra sem hefur hafnað því að yfirgefa Líbanon á meðan herinn freistar þess að uppræta Hezbollah-samtökin þar í landi.Vel á fimmta þúsund manns hafa verið drepin í árásum Ísraelshers á Líbanon síðan átök hófust þar í mars.Herinn lagði undir sig svæði í