Verslanafélagið Hagar, sem rekur Bónus, Hagkaup, Olís og fleiri keðjur, jók hagnað sinn milli ára um 64,5% á fyrsta ársfjórðungi, vegna „áhrifa hækkaðs heimsmarkaðsverðs olíu“ og „sterkari rekstrar verslana og vöruhúsa á Íslandi.“ Hagar högnuðust þannig um 1,9 milljarða króna frá 1. mars til 31. maí síðastliðins, en aðeins um 1,17 milljarða í fyrra, sem þó reyndist metár í rekstri...