Hvalfjarðargöng lokuð í tæpa tíu sólarhringa í fyrra

Hvalfjarðargöng voru lokuð fyrir umferð í nærri tíu sólarhringa á síðasta ári vegna viðhalds, slysa, bilaðra bíla í göngunum og forgangsaksturs. Það er talsvert meira en árin á undan þegar göngin voru lokuð í hálfan til tvo sólarhringa. Þetta kemur fram í svari Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra við fyrirspurn Ólafs Adolfssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Göngin hafa oftar verið lokuð vegna neyðaraksturs en áður og er nú svo komið að lokað er fyrir umferð þrisvar í viku að meðaltali til að greiða fyrir slíkum akstri. Göngin voru óvenju mikið lokuð síðustu tvö árin vegna viðhalds. Í maí voru þau mikið lokuð vegna endurnýjunar á ljósum.Lokað fyrir umferð um Hvalfjarðargöng.RÚV / Aðsend
Hvalfjarðargöng lokuð í tæpa tíu sólarhringa í fyrra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd