Donald Trump Bandaríkjaforseti hagnaðist um rúman einn milljarð dollara á rafmyntaviðskiptum á síðasta ári samkvæmt fjárhagsuppgjöri sem birt var í gær. US Office of Government Ethics, sjálfstæð stofnun sem hefur eftirlit með og á að koma í veg fyrir og leysa hagsmunaárekstra ríkisstarfsmanna, birti í gær rúmlega 900 síðna skjal þar sem þessar upplýsingar koma fram.Þennan mikla hagnað Trumps má að miklu leyti rekja til fyrirtækisins World Liberty Financial, sem Trump stofnaði árið 2024 skömmu áður en hann var settur í embætti forseta í annað sinn.Rafmyntarfyrirtækið stofnaði hann í félagi við syni sína og son Steve Witkoff sem hefur verið í hlutverki sérlegs erindreka Bandaríkjanna í samningaviðræðum við Írana. Alls hagnaðist Bandaríkjaforseti um 550 milljónir dollara vegna tengsla sinna v