Söngvari Village People látinn

Victor Willis, söngvari poppsveitarinnar Village People, lést á mánudaginn eftir skammvinn veikindi. Sagt varfrá andlátinu á Facebook-síðu hljómsveitarinnar í morgun.Willis var 74 ára gamall. Hann var í fararbroddi hljómsveitarinnar þegar hún fór með himinskautum á áttunda áratugnum með stórsmelli eins og In the Navy, Macho Man, Go West og ekki síst YMCA, sem lifir enn í dag góðu lífi.Hljómsveitarmeðlimir vöktu ekki síst athygli fyrir skemmtilega sviðsframkomu þar sem þeir klæddust búningum, til dæmis voru þar sjóliði, indíáni, verkamaður og svo lögreglumaðurinn Willis.Í frétt BBC segir að Willis hafi yfirgefið sveitina árið 1980 og hafi staðið í langvinnum deilum við félaga sína um höfundarrétt að lögum sveitarinnar. Sáttir náðust um síðir og hann hefur spilað með Village People síðustu á
Söngvari Village People látinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd