Ellefu ára kanadískur drengur lést eftir að hafa verið bitinn af leðurblöku. Fékk hann hundaæði sem var að mestu leyti einkennalaust þar til það dró hann til dauða.Bandaríski miðillinn The Daily Beast greinir frá þessu.Drengurinn var bitinn í sumarfríi í norðurhluta Ontario héraðs. Hann vaknaði með leðurblökuna á andlitinu og lamdi frá sér. Faðirinn kom að og náði að fanga leðurblökuna og sleppti henni út í náttmyrkrið.