Séra Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur, er látinn. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í gær, á 95. aldursári. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu.Þórir fæddist í Reykjavík 1. ágúst 1931. Hann lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1954 og vígðist til prests sama ár, yngstur manna á Íslandi, 22 ára, þegar hann var settur sóknarprestur í Staðarhólsþingum í Dölum.Þórir var sóknarprestur á Sauðárkróki frá 1960 til 1971. Hann var aðstoðarprestur við Dómkirkjuna í Reykjavík 1971 til 1973, þegar hann var kjörinn dómkirkjuprestur. Hann var dómkirkjuprestur til 1989.Eftir það starfaði hann sem staðarhaldari í Viðey.Þórir var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2008 fyrir störf sín í þágu kirkju, sögu og samfélags.Þórir var giftur Dagbjörtu Gunnlaugsdóttur frá Stökku