Öldruð kona lést eftir að hafa fallið fram af svölum á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi á sunnudag. Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar rannsakar andlátið sem slys, að því er fram kemur í frétt Vísis.Vísir ræddi við forstjóra hjúkrunarheimilisins, Eybjörgu Hauksdóttur, sem segir að um hörmulegt slys hafi verið að ræða.Starfsfólk hjúkrunarheimilisins hringdi á lögreglu þegar slysið varð, og það fékk áfallahjálp í kjölfarið.Eybjörg segir að verkferlar verði yfirfarnir og metið hvort hægt verði að grípa til frekari öryggisráðstafana.