Drukknir vegna slysa á skemmtibátum ekki fleiri í tíu ár

Sandnes í Noregi. Myndin tengist fréttinni óbeint.Wikimedia commons / Alexey TopolyanskiyAlls hafa 17 Norðmenn drukknað í tengslum við siglingar á skemmtibátum á fyrsta helmingi þessa árs, samkvæmt norsku siglingamálastofnunni.Norska ríkisútvarpið segir að þetta sé mesti fjöldi sem drukknað hefur með þessum hætti yfir sama tímabil í 10 ár. Allir hinna látnu voru karlmenn og flestir yfir 40 ára aldri. Ellefu þeirra voru ekki í björgunarvesti eða flotgalla þegar slysið átti sér stað. Flest slysin áttu sér stað í litlum opnum skemmtibátum.
Drukknir vegna slysa á skemmtibátum ekki fleiri í tíu ár

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd