Mexíkó vann Ekvador 2-0 í leik liðanna í 32- liða úrslitum í Mexíkóborg í nótt. Leikur Mexíkó og Ekvador átti að hefjast klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma en var frestað um klukkustund vegna hættu á eldingum. En seinkunin var ekki meiri og flautað var til leiks klukkan tvö.Lið Mexíkó var sterkara allan tímann en lék þó mun betur í fyrri hálfleik. Julian Quinones skoraði fyrsta markið á 22. mínútu og rétt tæpum níu mínútum síðar skoraði Raul Jimenez seinna mark Mexíkóa. Á 95. mínútu fékk Piero Hincapie rautt spjald fyrir að hylja munn sinn þegar hann talaði við mótherjann.Þetta er í annað sinn á HM í ár sem rautt spjald fer á loft fyrir þetta athæfi. Reglan var sett á í kjölfar umdeilds atviks í Meistaradeild Evrópu í vor og því er þetta fyrsta heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem henni