Katarar reyna að miðla málum í Doha

Sérlegur erindreki Bandaríkjanna Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, eru komnir til Katar til fundar við milligöngumenn frá Katar sem reyna að miðla málum milli Bandaríkjanna og Íran. Sendinefnd Írana fer einnig til Katar, sömuleiðis til fundar við milligöngumenn Katara.Nokkur óvissa hefur verið síðustu daga um framhald viðræðna milli þjóðanna.Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í færslu á Truth Social á mánudag að nýjar viðræður milli samninganefnda Írana og Bandaríkjamanna færu fram í Doha daginn eftir, en það gekk ekki eftir.Aðalsamningamaður Írana, Mohammad Bagher Ghalibaf, sagði í viðtali við ríkisfjölmiðil Írans í gær að Íranar ætluðu að sækjast eftir viðræðum við Bandaríkin en ef ekki yrði af þeim væru Íranar tilbúnir fyrir stríð.
Katarar reyna að miðla málum í Doha

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd