Frakkland og Svíþjóð mættust í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta í kvöld. Franska liðið gerði vel og vann 3-0.Svíþjóð byrjaði vel á fyrsta fjórðungnum og pressaði vel á frábært sóknarlið Frakka. Á síðari helmingi fyrri hálfleiks náðu Frakkar allri stjórn á vellinum og Kylian Mbappé kom liðinu yfir á 45. mínútu eftir stoðsendingu Dembélé. Bradley Barcola tvöfaldaði svo forystu liðsins á 53. mínútu og stoðsendinguna átti Michael Olise, 2-0.Áfram höfðu Frakkar stjórnina og á 74. mínútu skoraði Mbappé sitt annað mark í dag og sjötta á mótinu. Aftur var það Olise sem átti stoðsendinguna og sú var hans fimmta á mótinu. Frakkar sigldu 3-0 sigri í höfn og fara í 16-liða úrslit þar sem liðið mætir Paragvæ.