Lögreglan leitar að 15 ára dreng

Lögreglan á Vesturlandi hefur lýst eftir Cezary Kobiela, 15 ára dreng. Cezary fór frá Borgarnesi í gær með strætó suður til Reykjavíkur eða Akraness.Cezary er um 178 cm á hæð, grannur og dökkhærður. Hann var klæddur í svarta úlpu með loðkraga og dökkar buxur. „Þau sem vita eitthvað um ferðir Cezary eða vita hvar hann er niðurkominn eru beðin um að hafa strax samband við lögreglu í síma 112,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
Lögreglan leitar að 15 ára dreng

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd