Togari aflvana fyrir utan Siglufjörð

Björgunarskipið Sigurvin frá Siglufirði var kallað út á mesta forgangi á sjöunda tímanum í kvöld eftir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust neyðarboð frá togaranum Ottó N. Þorlákssyni úr Vestmannaeyjum. Togarinn var þá staddur hættulega nálægt landi við Siglufjörð.Lega ofhitnaði í togaranum með þeim afleiðingum að mikill reykur myndaðist. Skipið var algerlega aflvana og rak það í átt að landi.Áhöfnin á Sigurvini brást skjótt við og hélt björgunarskipið úr höfn aðeins um fimmtán mínútum eftir að útkallið barst.Skipin eru nú komin inn á Siglufjörð og vinnur áhöfn björgunarskipsins að því að koma togaranum örugglega að bryggju.Mynd af vettvangi.Landhelgisgæslan
Togari aflvana fyrir utan Siglufjörð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd