Par á Stöðvarfirði sér fyrir sér að kostnaður þeirra vegna lokunar einu fæðingardeildarinnar á Austurlandi í sumar geti hlaupið á hundruðum þúsunda. Þau þurfa að ferðast norður á land til að vera nærri opinni fæðingardeild vikurnar í kringum settan dag.„Tilfinningin að fara frá því að vilja eiga barnið sitt heima, ég var búin að skoða þann valmöguleika en hann er ekki í boði í þessum landsfjórðungi. Yfir í það, OK, þetta verður bara voða heimilislegt og kósý á sjúkrahúsinu í Neskaupstað, yfir í það að ég veit ekki hvar barnið mitt er að fara að fæðast. Það fer alveg með sálartetrið,“ segir Hrafnhildur Ósk Halldórs- Óðinsdóttir, verðandi móðir búsett á Stöðvarfirði.Hrafnhildur er ein 24 kvenna á Austurlandi sem eiga von á sér meðan fæðingardeildin í Neskaupstað verður lokuð 8. júlí til 14.