Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur tekið starfshætti vinnslustöðvar Hvals til skoðunar eftir að eftirlitinu barst tilkynning um mögulega yfirborðsmengun frá vinnslunni. Eftirlitið lítur málið grafalvarlegum augum og kemur til greina að beita þvingunarúrræðum ef ekki verður brugðist við tafarlaust.