Landeigandi í Skagafirði hefur áhyggjur af öryggi ferðafólks og náttúruspjöllum á landareign sinni. Hann segist tilneyddur til að loka fyrir aðgang.„Þetta byrjaði þannig að þetta var bara fyrir sveitunga og það vissu ótrúlega fáir af þessu. Þetta er svolítið falið, mjög nálægt veginum en sést eiginlega ekki neins staðar frá,“ segir Dagur Torfason, bóndi og landeigandi í Skagafirði. NÁGRANNI RUKKAR FYRIR BÍLASTÆÐI OG SALERNI Hann segir fjölda ferðafólks streyma á landareign sína til að njóta náttúruperlanna Fosslaugar og Reykjafoss. Landið er í einkaeigu og ekki er seldur aðgangur inn á svæðið. Nágranni hans hefur hafið gjaldskyldu á bílastæði og salerni á sínu landi. Bílastæðin voru upphaflega gerð vegna landsmóts hestamanna áður en það var fært yfir á Hóla í Hjaltadal.„En svo þegar far