Langreyður háði „óvanalega langt“ dauðastríð

Langreyður sem Hvalur 8 veiddi 22. júní síðastliðinn var skotin með fjórum sprengiskutlum, samkvæmt eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar. Þrjátíu og ein mínúta leið frá fyrsta skoti þangað til hún drapst.„Öll tilvik þar sem hvalur er skotinn oftar en einu sinni eru skráð sem frávik og þá rannsökum við málið,“ segir Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST.Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir tekur undir að drápið sé frávik og segir að dauðastríðið hafi verið óvanalega langt í þessu tilfelli.Hún bendir á að árið 2023 hafi aðeins ein langreyður háð dauðastríð lengur en í 12 mínútur. Á þeirri vertíð veiddust 24 dýr og meirihluti þeirra drapst samstundis. Fimm langreyðar voru skotnar tvisvar og engin þeirra oftar. KREFJAST STÖÐVUNAR VEIÐA Í yfirlýsingu frá ýmsum náttúru- og dýraverndarsamt
Langreyður háði „óvanalega langt“ dauðastríð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd