Rússar gleðjast yfir óvissu en Keflavík enn mikilvæg

Eru Bandaríkin að kalla herlið sitt frá Evrópu og blasa endalok NATO við? Þeirrar spurningar hefur ítrekað verið spurt síðustu misseri í ljósi yfirlýsinga bandarískra ráðamanna, nú síðast eftir að Pete Hegseth tilkynnti með þjósti um endurskoðun herafla og herstöðva í álfunni.Á fundi varnarmálaráðherra NATO 18. júní síðastliðinn sagði Hegseth markmiðið að Evrópuríki tækju aukna ábyrgð á eigin vörnum. Hann hefur jafnframt gagnrýnt bandamenn sem hann telur ekki standa sig nægilega vel. Í ræðu í Brussel sagði hann að Evrópa yrði að leiða hefðbundnar varnir álfunnar og að bandarísk viðvera yrði skoðuð í því ljósi. Þeirri skoðun ætti að vera lokið innan sex mánaða.Jim Townsend, sérfræðingur við Center for a New American Security, starfaði um árabil að Evrópu- og NATO-málum í Pentagon og var með
Rússar gleðjast yfir óvissu en Keflavík enn mikilvæg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd