Um ein milljón hefur sótt um dvalarleyfi á Spáni eftir að stjórnvöld þar kynntu áform um að veita óskráðum innflytjendum dvalarleyfi í landinu.Umsóknarfresturinn rennur út í dag en spænsk stjórnvöld kynntu áformin í apríl. Þau vöktu talsverða athygli fyrir að vera frábrugðin því sem flest önnur Evrópuríki hafa gert, sem er að herða reglur og lög um innflytjendur.Átakið á Spáni nær til allra sem komu til landsins fyrir síðustu áramót og geta sýnt fram á hreint sakavottorð. Öll þau geta sótt um dvalarleyfi til eins árs og svo á að vera hægt að sækja um framlengingu.Ekki er ljóst hversu mörg fá dvalarleyfi, spænsk stjórnvöld töldu í upphafi að aðgerðin gagnaðist um 500 þúsund.Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar segir að fjöldi umsókna sýni hversu brýn þörfin sé. Stjórnvöld ætla að gefa sér