Halldór Haraldsson píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík lést í gær, 89 ára gamall. Halldór á farsælan feril að baki og fékk meðal viðurkenningu Associate of the Royal Academy of Music í London árið 1988 og var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu tónlistar árið 2003.Halldór hélt sína fyrstu opinberu einleikstónleika árið 1965 og svo fjölda einleikstónleika bæði heima og erlendis, en einnig lék hann margoft sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands.Hann stofnaði Tríó Reykjavíkur árið 1988 með Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara og Gunnari Kvaran sellóleikara og héldu þau tónleika víða. Þá lék hann oft með Gísla Magnússyni píanóleikara en þeir gáfu út tvær hljómplötur með verkum fyrir tvö píanó. Hann vann við tónlistarkennslu á