Komust á snoðir um kókaínsmyglið fyrir nokkrum vikum

Lögregla vinnur með Europol og lögreglu erlendis að rannsókn á stærðarinnar kókaínsmygli hingað til lands. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild, segir rannsóknina gríðarlega umfangsmikla.Húsleitir og skýrslutökur eru framundan í tengslum við málið sem teygir anga sína til Brasilíu.„Við komumst á snoðir um þetta mál fyrir nokkrum vikum síðan og þá hófst talsverð rannsókn, umfangsmikil rannsókn, og undirbúningur á málinu. Þetta skip var að koma frá Suður-Ameríku og stefndi á Straumsvík með súrál,“ segir Ævar Pálmi í viðtali við fréttastofu.Málið er stærsta kókaínsmygl sem lögregla hefur stöðvað í sögu Íslands.106 kílóum af kókaíni var smyglað til landsins með skipinu Koznitza sem kom frá Brasilíu. Að minnsta kosti níu hafa verið handteknir í tengslum við það og
Komust á snoðir um kókaínsmyglið fyrir nokkrum vikum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd