Sóttu slasaðan mann í Drangey

Björgunarsveit á Sauðárkróki var kölluð út síðdegis í dag og sótti slasaða manneskju í Drangey í Skagafirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að sækja viðkomandi.Þar segir að uppgangan í Drangey sé brött og erfið og því hafi ekki verið hlaupið að því að flytja þaðan liggjandi sjúkling. Hlúð var að viðkomandi, hann verkjastilltur og búið um í börum til flutnings.Björgunarbáturinn Alda var sjósettur á Sauðárkróki og flutti björgunarfólk ásamt sjúkraflutningafólki út í Drangey. Úr Uppgönguvík lá svo leiðin upp í eyjuna og að Drangeyjarskála þangað sem sjúklingur hafði verið fluttur af öðrum í eynni.Aðgerðum lauk í kringum klukkan fimm.
Sóttu slasaðan mann í Drangey

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd