Landris heldur áfram undir Svartsengi með stöðugum hraða og líklegasta sviðsmyndin er enn áframhaldandi kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi. Þetta kemur fram í nýju hættumati Veðurstofu Íslands.Meðalhraði kvikusöfnunar hefur haldist stöðugur síðustu vikur og jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og nærri Grindavík er áfram frekar lítil.Guðmundur Bergkvist