Halldór Haraldsson, píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, lést í gær, þann 29. júní, þá 89 ára gamall. Foreldrar hans voru Haraldur Halldórsson og Hólmfríður Gísladóttir en hann lætur eftir sig eiginkonu, tvö börn, barnabörn og barnabarnabörn.