TOGAST Á UM ÞÁ SEM EKKI HAFA ÁKVEÐIÐ SIG Í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups þar sem spurt var um atkvæðagreiðsluna í lok sumars kom fram að mjótt er á munum milli þeirra sem hallast að því að segja já og þeirra sem ætla að segja nei. Heldur fleiri segjast öruggir um jáið eða 39% en 35% segjast örugglega munu segja nei.Könnunin var gerð 12. til 24. júní. 26% eru ekki alveg afdráttarlaus en 13% segjast líklega munu segja já og 13% eru á því að líklega verði neiið ofan á.Það eru væntanlega þessi 26%, sem eru ekki tilbúin til að segjast örugglega ætla að kjósa svona eða hinsegin, sem barist er um í sumar.29. ágúst skal þjóðin svara spurningunni á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið með jái eða nei. Það var togast á um orðalag spurningarinnar, þetta var hitamál á þingi og lengs