Mikil ólga er í Suður-Afríku eftir mótmæli og ofbeldi gegn innflytjendum síðustu vikur. Mótmælahreyfingar gáfu fólki án dvalarleyfis frest þar til í dag til að yfirgefa landið.Þúsundir hafa þegar farið úr landi af ótta við mótmælendur. Reiði þeirra beinist að innflytjendum frá öðrum Afríkuríkjum eins og Simbabve, Mósambík og Malaví. Margir hafa komið þaðan til Suður-Afríku í leit að vinnu vegna efnahagsstöðunnar heima.Í síðustu viku var 29 ára karlmaður frá Malaví myrtur þegar hópur af reiðu fólki réðst á hann. Yfirvöld í Mósambík segja að fimm ríkisborgarar þaðan hafi verið drepnir í Suður-Afríku.Þessar myndir og viðtöl hér að neðan eru frá hollenska ríkissjónvarpinu sem var borginni Durban, sem er sú þriðja fjölmennasta í landinu.Lögreglumenn hafa verið með töluverðan viðbúnað víða í Suð