Félag íslenskra hljómlistarmanna, systursamtök þess á Norðurlöndunum og fleiri félög lýsa yfir þungum áhyggjum vegna vaxandi gervigreindarsamstarfs plötuútgefenda við tæknifyrirtæki og stafrænar tónlistarveitur á borð við Spotify.Í sameiginlegri yfirlýsingu segir að plötuútgefendur leyfi notkun á tónlistarsöfnum til að þjálfa gervigreind án samþykkis frá tónlistarmönnum sem fá ekki sanngjarna þóknun fyrir. Yfirlýsinguna styðja einnig FIM, alþjóðasamband stéttarfélaga tónlistarflytjenda, IAO, alþjóðasamband stéttarfélaga tónlistarflytjenda, og Bandalag íslenskra listamanna.Gunnar Hrafnsson, formaður FÍH, segir að allir eldri samningar plötuútgáfna við tónlistarfólk hafi ekki náð til notkunar á tónlist fyrir þjálfun gervigreindar.„Mögulega í dag eru gerðir samningar þar sem útgefendur reyna