Mælti sér mót við 14 ára stúlku

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir kynferðisbrot gegn barni með því að hafa á tímabilinu febrúar til maí 2023 ítrekað sent kynferðisleg skilaboð til 14 ára stúlku í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat. Hann er einnig sakaður um að hafa mælt sér mót við stúlkuna í því skyni að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök.Krafist er þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Einnig er krafist upptöku á iPhone síma hans. Fyrir hönd stúlkunnar er gerð krafa um miskabætur að fjárhæð 1,5 milljónir króna.
Mælti sér mót við 14 ára stúlku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd