Hæstiréttur í Bandaríkjunum hefur hafnað tilskipun Donalds Trump forseta um að fella úr gildi lög um að börn sem fæðast í landinu hljóti sjálfkrafa ríkisborgararétt.Sama dag og hann tók við embætti forseta öðru sinni, 20. janúar 2025, skrifaði Trump undir tilskipun um ríkisborgararétt. Með henni átti að fella úr gildi lög um að börn sem fæðast í Bandaríkjunum hljóti sjálfkrafa ríkisborgararétt.Dómsins var beðið með talsverðri eftirvæntingu en sex dómarar af níu úrskurðuðu gegn tilskipun Trumps. Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur áður túlkað stjórnarskrána sem svo að allir sem fæðast í Bandaríkjunum hafi bandarískan ríkisborgararétt.Áður hafði dómari í Seattle stöðvað innleiðingu tilskipunarinnar á þeim grundvelli að hún fæli í sér stjórnarskrárbrot.