Karlmaður á sextugsaldri var handtekinn á Norðurlandi á dögum með 56 kíló af amfetamíni í bíl sínum, auk annarra fíkniefna. Lögreglan hefur aldrei lagt hald á jafnmikið magn amfetamíns í einni sendingu.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að maðurinn hafi komið til landsins með Norrænu. Fíkniefnin voru falin í húsbíl mannsins. Auk amfetamínsins fundust í bílnum 8 kíló af kókaíni, 3 kíló af ketamíni, 1 kíló af metamfetamíni og 1 kíló af svokölluðu „bleiku kókaíni“, blöndu af ketamíni og MDMA.Fréttin verður uppfærð.