Dómsmálaráðherra segir viðbrögð stjórnvalda og viðbúnað Landhelgisgæslunnar vegna skipsins Bandero ekki snúast um hvalveiðar eða afstöðu til þeirra heldur um öryggi sjófarenda. Ráðherra lagði fram minnisblað á ríkisstjórnarfundi í morgun um viðbrögð Landhelgisgæslunnar vegna komu skipsins. „ALVEG SKÝRT AÐ HVALVEIÐAR ERU LÖGLEGAR“ „Við vitum öll hverjar yfirlýsingarnar hafa verið. Fyrir mér er þetta ekki mál sem snýst um hvalveiðar eða afstöðu til hvalveiða,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.„Þetta er mál sem snýst um öryggi sjómanna sem eru hér á veiðum og auðvitað líka áhöfn hins erlenda skips. Þannig við fylgjumst með.“Þorbjörg lagði fram minnisblað á ríkisstjórnarfundi í morgun um viðbrögð Landhelgisgæslunnar við komu skipsins Bandero, sem er í eigu aðgerðars