108 kílóum af kókaíni var á dögunum smyglað til landsins með skipi sem kom frá Brasilíu og lagði að höfn í Straumsvík í Hafnarfirði. Aldrei hefur svo mikið kókaín fundist í einni sendingu.Umfangsmiklar lögregluaðgerðir hafa staðið yfir á undanförnum dögum þar sem gerðar hafa verið nokkrar húsleitir. Að minnsta kosti níu hafa verið handteknir og færðir í gæsluvarðhald. Þar af eru Brasilíumenn, Rúmeni og að minnsta kosti tveir Íslendingar. Einhverjir hinna grunuðu hafa verið úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald.Verjendur hinna grunuðu hafa ekki fengið upplýsingar um hve umfangsmikil málin eru. SIGLIR UNDIR MALTNESKUM FÁNA Efnin komu til landsins með súrálsskipinu Koznitza frá Brasilíu mánudaginn 22. júní. Skipið siglir undir maltneskum fána og fór aftur af landi brott á sunnudaginn.